Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
29

Hádegisfundur 17. febrúar

17.02.2014Mánudaginn 17. febrúar kl.12:10 verður hádegisfundur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal þar sem Dr. Anna Hafsteinsson Östenberg sjúkraþjálfari og Vésteinn Hafsteinsson afreksþjálfari munu ræða þau ólíku sjónarmið sem upp geta komið á milli þjálfara afreksmannsins annars vegar og sjúkraþjálfarans hins vegar þegar íþróttamaðurinn er að fara aftur af stað eftir meiðsli. Hvenær er hann tilbúinn til æfinga eða keppni? Hver á að ráða, þjálfarinn eða sjúkraþjálfarinn? Fyrirlesturinn fer bæði fram á ensku og íslensku, er öllum opinn og þátttaka ókeypis. Skráning fer fram á skraning@isi.is. Hægt verður að fylgjast með hádegisfundinum á slóðinni 

https://get.netviewer.com/meet/join.php?sinr=643507&sipw=nv64. Númerið á fundinum er 643507.